Fréttir

Dregið í Mjólkurbikarnum – ÍA og Kári fengu heimaleiki

Dregið var í 16-liða úrslit Mjólkurbikars karla í hádeginu í dag í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal. Fjórir Bestu deildarslagir komu upp úr pottinum; KA mætir Fram, KR fær ÍBV í heimsókn, ÍA fær Aftureldingu og Íslandsmeistarar Breiðabliks taka á móti Vestra.

Vesturlandsliðin ÍA og Kári fengu heimaleiki en Víkingur Ólafsvík þarf að ferðast á Suðurnesin. Skagamenn spila á móti nýliðum Aftureldingar úr Bestu deildinni, Kári mætir liði Stjörnunnar úr Bestu og Víkingur Ó. spilar gegn Keflavík sem leikur í Lengjudeildinni.

Annars var drátturinn eftirfarandi:

KA – Fram

KR – ÍBV

Breiðablik – Vestri

Kári – Stjarnan

Valur – Þróttur R.

ÍA – Afturelding

Selfoss – Þór

Keflavík – Víkingur Ó

16-liða úrslitin fara fram dagana 14. og 15. maí.

Dregið í Mjólkurbikarnum – ÍA og Kári fengu heimaleiki - Skessuhorn