
Björgunarbátar Landsbjargar komu tveimur bátum til aðstoðar í dag
Um klukkan 9:30 í morgun voru áhafnir björgunarskipanna Bjargar í Rifi og Jóns Gunnlaugssonar á Akranesi kallaðar út vegna fiskibáts sem misst hafði vélarafl suður af Snæfellsnesi, skammt vestur af Landbrotavík. Tveir voru um borð en engin hætta þeim búin en skipverjar höfðu varpað út ankeri. Varðskipið Freyja var statt skammt utan Hafnarfjarðar og var því einnig snúið til aðstoðar.
Björgunarskipið Björg kom svo að fiskibátnum rétt fyrir klukkan 12 og kom taug á milli. Stefnan var svo sett suður á bóginn, en báturinn skyldi dreginn til hafnar á Akranesi. Um klukkustund síðar mættust Björg og Jón Gunnlaugsson, sem tók við drætti áfram til Akraness. Björg snéri til heimahafnar í Rifi og var komin þangað rétt upp úr klukkan 15. Jón Gunnlaugsson var á sjötta tímanum í dag að renna í höfn á Akranesi. Áhöfnin komst þó ekki í hvíld, því varðskipið Freyja var þá komið með annan bát í drátt rétt vestur af Akranesi, sem Jón Gunnlaugsson sótti og dró til hafnar, enda ekki eins djúpristur og Freyja.