
Hluti nýju húseininganna verður komið fyrir í Nýrækt. Ljósm. stykkisholmur.is
Gáfu efni og vinnu í Nýrækt
Fyrirtækið BB og Synir í Stykkishólmi gaf sveitarfélaginu og Skógræktarfélagi Stykkishólms á dögunum efni og vinnu við jarðvegsframkvæmdir í Nýrækt. Þar undirbjó fyrirtækið fyrir komu húseininga sem sveitarfélagið festi kaup á fyrir skemmstu og mun flytja í Nýræktina á næstunni.