
Tengiráðgjafar vinna við að leysa félagslega einangrun fólks
Vitundarvakning um félagslega einangrun stendur nú yfir og hafa nokkrir tengiráðgjafar hafið störf víðsvegar um landið. Það er félags- og húsnæðismálaráðuneytið sem stendur fyrir átaksverkefni gegn félagslegri einangrun undir yfirskriftinni; Tölum saman. Með henni vilja stjórnvöld vekja athygli almennings á því hve alvarleg félagsleg einangrun er og hvernig við getum öll verið hluti af lausninni. Ýmis ráð eru til að rjúfa félagslega einangrun, hvort sem er fyrir þau sem eru félagslega einangruð eða fólkið í kringum þau – og hefur eftirspurn verið mikil eftir fræðsluefninu sem nálgast má á island.is/felagsleg-einangrun.
Eitt af þeim úrræðum sem eru í boði vítt og breitt um landið er þjónustu tengiráðgjafa, en þeir veita eldra fólki og öðrum viðkvæmum hópum stuðning til að rjúfa félagslega einangrun og finna leiðir til að auka virkni. Tengiráðgjafinn á Vesturlandi heitir Laufey Jónsdóttir og hægt er að hafa samband við hana í gegnum netfangið laufey@ssv.is Tengiráðgjafar eru einnig starfandi á Vestfjörðum, Húnaþingi vestra, Dalvíkurbyggð, Fjarðabyggð og Múlaþingi, Árborg og Hveragerðisbæ og Mosfellsbæ.
Tengiráðgjafar nálgast einstaklinga sem eru félagslega einangraðir eða eiga á hættu að einangrast, meðal annars með símtölum og heimsóknum og vinna með þeim að leiðum til að auka virkni. Tengiráðgjafar hafa einnig yfirsýn yfir bjargir nærsamfélagsins, sérstaklega þau úrræði sem eru líkleg til að auka félagsleg samskipti viðkvæmra hópa. Um tveggja ára tilraunaverkefni er að ræða sem fór af stað hjá stjórnvöldum sem viðbragð við félags- og heilsufarslegum afleiðingum Covid-19 heimsfaraldursins. Tengiráðgjafarnir hafa þegar verið í samskiptum við fjölda íbúa og þau sem sinna þjónustu við hópinn á sínum svæðum.
