
Páska- og sumarblað Skessuhorns í næstu viku
Framundan eru páskar og sumardagurinn fyrsti í framhaldi þeirra 24. apríl. Að vanda færa rauðir dagar hefðbundna útgáfu Skessuhorns úr skorðum. Blaðið í næstu viku fer í prentun degi fyrr en venjulega þ.e. á mánudagskvöldi, til að það nái í tæka tíð til allra lesenda fyrir páska. Frestur til að skila inn auglýsingum í Páska- og sumarblað er í síðasta lagi í dag, föstudaginn 11. apríl. Bendum á netfangið auglysingar@skessuhorn.is og síma 433-5500.
Ekkert blað kemur út vikuna eftir páska og síðasta blað mánaðarins verður gefið út miðvikudaginn 30. apríl. Útgáfudagar verða því alls fjórir í apríl.