Fréttir
Kristín Jónsdóttir útibússtjóri Sjóvár í Borgarnesi og Bjarki Pétursson framkvæmdastjóri GB við Hamarsvöll. Ljósm. hig

Sjóvá styður við barna- og unglingastarf GB

Sjóvá og Golfklúbbur Borgarness hafa framlengt samstarfssamning þar sem Sjóvá er einn af aðalstyrktaraðilum klúbbsins. Sjóvá mun sérstaklega styðja við bakið á barna- og unglingastarfi klúbbsins næstu árin. Aðspurð segist Kristín Jónsdóttir, útibússtjóri Sjóvár í Borgarnesi, vera afar ánægð með samstarfið. „Við erum stolt af samstarfinu við Golfklúbb Borgarness þar sem við styrkjum sérstaklega barna- og unglingastarfið. Íþróttastarf gegnir lykilhlutverki í að efla heilsu og vellíðan ungs fólks og þessi samningur styður við mikilvægar forvarnir,“ segir hún.

Sjóvá styður við barna- og unglingastarf GB - Skessuhorn