
Næturhreinsun í göngunum
Vegna þrifa verður fylgdarakstur í gegnum Hvalfjarðargöngin aðfararnætur 10. og 11. apríl frá miðnætti til klukkan 06:30. Umferð er stöðvuð við gangamunna uns fylgdarbíll kemur en vegfarendur eru beðnir um að aka með gát þar sem flughálka getur myndast við enda ganganna.