
Starfsmenn Vegagerðarinnar að vinna við burðarvirki brúarinnar. Ljósm. Vegagerðin
Vinna við gerð nýrrar brúar yfir Ferjukotssíki
Um miðjan janúar urðu gífurlegir vatnavextir eftir úrhellisrigningar og asahláku sem gerði það að verkum að nýleg brú yfir Ferjukotssíkin varð undan klakaburði að láta. Hafin er vinna við nýja brú. „Verið er að steypa upp nýja stöpla og við nýtum sama burðarvirki þar sem stálvirkið kom að mestu leyti heilt á land eftir flóðið í vetur. Vatnavextir á svæðinu hafa örlítið sett strik í reikninginn en búið er að hanna aðliggjandi veg að brúnni með ræsum þannig að í flóðum þá flæði fyrr yfir veginn til þess að létta á vatnsmagni og straumhraða undir brúna. Sjálfu brúargólfinu verður lyft örlítið og brúarstæðið fært aðeins lengra frá landi,“ segir Pálmi Þór Sævarsson svæðisstjóri Vestursvæðis Vegagerðarinnar í samtali við Skessuhorn.