Vilja stækka bílastæðin við þjóðgarðsmiðstöð

Á fundi umhverfis- og skipulagsnefndar Snæfellsbæjar á þriðjudaginn var rædd stækkun á bílastæði við Þjóðgarðsmiðstöðina á Hellissandi. Vegna mikillar fjölgunar gesta sem heimsækja Þjóðgarðsmiðstöðina á hverju ári er nauðsynlegt að stækka bílastæði miðstöðvarinnar til að mæta aukinni bílaumferð og þá sérstaklega hópferðabíla. Nýverið var haldinn fundur með fráfarandi og núverandi þjóðgarðsverði þar sem möguleikar á fjölgun bílastæða voru ræddir, auk atriða er varðar umferðaröryggi. Skipulagsfulltrúi kynnti málið fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd og lagði fram tillögu af svæði í samræmi við niðurstöður fundarins. Nefndin samþykkti fyrirliggjandi tillögu skipulagsfulltrúa á svæði til stækkunar bílastæða við Þjóðgarðsmiðstöðina, með fyrirvara um að endanlegt umferðarskipulag gangandi og akandi verði kynnt fyrir nefndinni.

Vilja stækka bílastæðin við þjóðgarðsmiðstöð - Skessuhorn