
: Keppendur í rafvirkjun á Íslandsmeistaramótinu í iðngreinum 2025. Íris Arna er lengst til vinstri fyrir miðju og Elvar Ingi fyrir ofan hana. Ljósm. fva
Vann verðlaun fyrir bestu frammistöðuna í húsarafmagni
Þrír nemendur kepptu fyrir hönd Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi á Íslandsmeistaramóti iðn- og verkgreina sem fram fór á framhaldsskólakynningunni Mín framtíð sem haldin var um miðjan mars í Laugardalshöllinni. Það voru þau Elvar Ingi Kristjánsson og Íris Arna Ingvarsdóttir sem tóku þátt í rafvirkjun og Matthías Bjarmi Ómarsson í húsasmíði. Þau stóðu sig mjög vel og voru öll að keppa í fyrsta sinn. Verkefnin í rafmagninu voru bæði tæknilega krefjandi og tímafrek í ár. Elvar Ingi hlaut verðlaun fyrir bestu frammistöðuna í húsarafmagni.