
Umferðarstýring við Snæfellsnesveg
Lagnaframkvæmdir standa nú yfir í vegöxlinni við Snæfellsnesveg, frá hringtorgi og að Steypustöðinni í Borgarnesi. Nú er vegurinn einbreiður og umferðarstýring er um hann ásamt hjáleið. Fram kemur hjá Veitum að verkefnið felst í að lagfæra sig í fráveitulögn meðfram Snæfellsnesvegi. Lagðar verða nýjar lagnir yfir veginn til móts við Steypustöðina. Vatnslögn verður endurnýjuð á kafla til að fyrirbyggja frekari bilanir. Lagnir liggja á miklu dýpi á þessu svæði og því er vinnusvæðið fremur viðamikið.