Brákarey í Borgarnesi en til stendur að hefja niðurrif á gamla hluta sláturhússins. Einungis burstirnar þrjár munu standa eftir af byggingunni. Ljósm. hig

Tilboði tekið í niðurrif húsa í Brákarey

Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum í gær að ganga að tilboði Ó.K. Gámaþjónustu – sorphirðu ehf. í niðurrif á hluta gamla sláturhússins í Brákarey. Tilboðið hljóðaði upp á 51,5 milljón króna. Alls bárust fimm tilboð í verkið, það hæsta var 122 milljónir króna. Borgarbyggð óskaði eftir tilboðum í niðurrif á sex byggingarhlutum og förgun rifúrgangs við Brákarbraut 25 í febrúar. Rifúrgang skal flokka og ráðstafa hverjum efnisflokki til endurnýtingar, endurvinnslu eða í förgun. Í byggingarhlutum eru m.a. asbestplötur sem fjarlægja skal og farga sérstaklega. Verkinu skal að fullu lokið 28. ágúst á þessu ári. Þegar þessum kafla í niðurrifi hússins verður lokið standa einungis burstirnar þrjár eftir. Rifið verður frystihúsið, gúanóhúsið og tengibyggingar.

Tilboði tekið í niðurrif húsa í Brákarey - Skessuhorn