
Pallborðsumræður voru líflegar og góðar. Ljósm. hig
Tengja saman fyrirtæki í ferðaþjónustu og samfélagið
Áhugavert málþing fór fram að Hótel Hamri í gærmorgun en það bar yfirskriftina: „Er Vesturland aðlaðandi fyrir starfsfólk í ferðaþjónustu?“ Málþingið var í höndum Markaðsstofa landshlutanna, Samtaka ferðaþjónustunnar og Hæfniseturs ferðaþjónustunnar. Aðalumræðuefnið var móttaka, inngilding og búsetukostir starfsfólks í ferðaþjónustu á Vesturlandi.