Horft yfir afhafnasvæði Sementsverksmiðjunnar en samningar um leiguna renna út 2028. Ljósm. mm

Sementsverksmiðjan vill vera lengur á Akranesi

Á fund bæjarráðs Akraneskaupstaðar 27. mars síðastliðinn mættu tveir fulltrúar frá Sementsverksmiðjunni, þeir Þorsteinn Víglundsson og Gunnar Sigurðsson framkvæmdastjóri. Þeir voru mættir til að fylgja eftir erindi sínu frá því í september á síðasta ári varðandi möguleika á áframhaldandi rekstri sementssílóa og sementsafgreiðslu á núverandi stað nærri höfninni á Akranesi. Í samningi sem undirritaður var milli Akraneskaupstaðar, Sementsverksmiðjunnar og Arionbanka í árslok 2013 segir orðrétt: „Sementsverksmiðjan ehf. mun starfa að innflutningi sements og leigja tæplega 11% af flatarmáli lóða á sementsreitnum til 2028. Þegar leigusamningurinn rennur út fær Akraneskaupstaður öll mannvirki á viðkomandi lóð afhent án kvaða, veðbanda eða endurgjalds.“

Sementsverksmiðjan vill vera lengur á Akranesi - Skessuhorn