Myndin sýnir yfirfarna skjálfta síðustu 12 klukkustundirnar.

Jörð heldur áfram að skjálfa á Reykjanesi

Jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaga hélt áfram í gærkvöldi og í nótt, en hefur engu að síður farið minnkandi frá fyrri dögum samkvæmt Náttúruvakt Veðurstofunnar. Virknin er nokkuð jafndreifð um kvikuganginn, frá Stóra Skógfelli í suðri og norður fyrir Keili. Dýpi skjálfta er ennþá nokkuð stöðugt milli 4 og 6 km.

Um kl. 17:30 í gær, 3. apríl, hófst kröftug hrina gikkskjálfta við Trölladyngju norðvestan við Kleifarvatn. Stærsti skjálftinn sem mældist var 3,9 að stærð rétt fyrir kl. 23 í gærkveldi en alls mældust fimm skjálftar yfir 3 að stærð síðan hrinan hófst klukkan hálf sex. Fjölmargar tilkynningar bárust Veðurstofunni um að skjálftarnir hefðu fundist í byggð, en meðal annars fundust þeir greinilega handan Faxaflóa m.a. á Akranesi. Eftir miðnætti hefur hægt og bítandi dregið úr fjölda gikkskjálfta á svæðinu.

Jörð heldur áfram að skjálfa á Reykjanesi - Skessuhorn