
Rauða fjöðrin seld til styrktar Píeta samtökunum
Landssöfnun Lionshreyfingarinnar og Píeta samtakanna, Rauða fjöðrin, fer fram dagana 3.-6. apríl nk. Allur ágóði rennur til Píeta samtakanna og til sjálfsvígsforvarna ungs fólks. Lionsfélagar munu verða sýnilegir og selja fjöðrina um allt land. Einnig munu Nettó verslanir Samkaupa vera með Rauðu fjöðrina til sölu við afgreiðslukassana.
Á eftirtöldum stöðum á Vesturlandi verður rauða fjöðrin seld um næstu helgi: Lionsklúbbur Akraness og Eðna, Agla í Borgarnesi, Lionsklúbbur Grundarfjarðar, Lionsklúbbur Ólafsvíkur og Lionsklúbbur Stykkishólms.
Þeir sem vilja styrkja söfnunina beint geta lagt inn á eftirfarandi reikning: kt: 640572 0869, reikn: 0544 14 556440
-fréttatilkynning