World Class með hagstæðasta tilboðið í líkamsræktina á Jaðarsbökkum

Akraneskaupstaður óskaði á dögunum eftir tilboðum í leigu á bragganum við Jaðarsbakka, þar sem stefnt er að rekstri öflugrar líkamsræktarstöðvar. Um er að ræða um tvö þúsund fermetra íþróttahús sem losnar haustið 2025, þegar núverandi starfsemi flyst í nýtt íþróttahús á svæðinu.

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar í gær var málið tekið fyrir og skiluðu tveir aðilar inn tilboðum, Laugar ehf. (World Class) og óstofnað hlutafélag (Sporthúsið ehf.). Niðurstaða valnefndar var sú að Laugar ehf. voru með hagstæðasta tilboðið miðað við forsendur fyrirliggjandi tilboðsgagna og lagði hún til við skóla- og frístundaráð að hefja viðræður um rekstur á líkamsrækt við félagið.

Skóla- og frístundaráð tók undir tillögu valnefndar um að hafnar verði viðræður við Laugar ehf. (World Class) um rekstur á líkamsrækt á Jaðarsbökkum og vísaði málinu til umfjöllunar hjá bæjarráði. Bæjarráð samþykkti tillögu valnefndar og skóla- og frístundaráðs um að farið verði í formlegar viðræður við Laugar ehf. (World Class).

World Class með hagstæðasta tilboðið í líkamsræktina á Jaðarsbökkum - Skessuhorn