Fréttir
Göngustígur. Ljósm. Hvalfjarðarsveit

Jónas mun leggja nýjan göngustíg

Sveitarfélagið Hvalfjarðarsveit bauð fyrr á þessu ári út gerð göngu- og hjólreiðastígs meðfram Eiðisvatni en um er að ræða 3. áfanga verksins. Fyrri áfangar stígsins voru gerðir í tveimur áföngum árin 2021 og 2022 og liggja frá götunni Háamel í Melahverfi, að Eiðisvatni, meðfram vatninu, yfir Urriðaá og að tanga sem nefnist Grjótnes. Verkið nú felst í að leggja tveggja metra breiðan göngustíg frá þeim stað þar sem göngustígurinn endar nú við Grjótnes, með Eiðisvatni, um jarðirnar Stóru-Fellsöxl og Fellsenda. Verklok eru áætluð 1. ágúst næstkomandi. Opnun tilboða fór fram föstudaginn 7. mars sl. og bárust alls sjö tilboð í verkið. Reyndist fyrirtækið Jónas Guðmundsson ehf. eiga hagstæðasta tilboðið eða að upphæð 17.231.000 kr. en kostnaðaráætlun Hvalfjarðarsveitar var að upphæð 17.799.470 kr. Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 26. mars að ganga til samninga við lægstbjóðanda og fól Hlyni Sigurdórssyni, verkefnastjóra framkvæmda og eigna, að ganga frá verksamningi þar um.