
Minnismerkið The Children´s Peace Monument í Hiroshima í Japan.
Stefna á að brjóta þúsund trönur á bókasafninu
Á Bókasafni Akraness verður þrjá næstu fimmtudaga í gangi gefandi verkefni þar sem stefnt er að brjóta þúsund Origami trönur (pappírsfugla). Trönurnar verða síðan hengdar upp á bókasafninu. Verkefnið er til að minna á frið í heiminum, en tranan er orðin friðartákn víða um heim. Trönur verða brotnar á bókasafninu á morgun, fimmtudag, milli klukkan 15 og 17 og eru þær stöllur Bryndís og Borghildur sem standa fyrir verkefninu og leiðbeina. Þetta verður síðan endurtekið tvo næstu fimmtudaga á sama tíma. Bent er á að börn yngri en 12 ára verða að vera í fylgd með forráðamanni til aðstoðar. Allur pappír, skæri og leiðbeiningar verða til staðar.