Fréttir
Þessi öldruðu hjón voru í heimsókn í Brekkó að kíkja á barnabörnin. Ljósm. vaks

Stemning á öskudegi á Skaganum – Myndasyrpa

Það var heilmikil litadýrð sem mætti blaðamanni Skessuhorns í morgun þegar hann heimsótti Brekkubæjarskóla og Grundaskóla á Akranesi. Hann kom einnig við á leikskólunum Teigaseli og Vallarseli auk þess að kíkja í nokkur fyrirtæki. Stemningin var mjög góð alls staðar og allir voru meira en til í myndatöku. Smellt var af nokkrum myndum og reynt að fanga augnablikið. Hér fyrir neðan má sjá afraksturinn úr ferðinni í blíðviðrinu í morgun.