Fréttir
Núverandi þingmenn kjördæmisins.

Samfylking að bæta við sig í NV kjördæmi

Samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup, sem RUV deildi með Skessuhorni, er talsverð breyting á fylgi flokka í Norðvesturkjördæmi. Samfylking fengi nú tvo kjördæmakjörna þingmenn í Norðvesturkjördæmi í stað eins, en það væri á kostnað þingmanns Viðreisnar. Framsókn, Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Flokkur fólksins fengju einn mann hver flokkur. Fylgi flokkanna í NV kjördæmi skiptist þannig að Samfylking er stærst, mælist nú með 24,6% fylgi. Sjálfstæðisflokkur er með 19,3%, Miðflokkurinn 13,5%, Framsókn 12,8%, Flokkur fólksins 10,7%, Viðreisn 8%, Sósíalistaflokkurinn 4,8%, VG 3,2% og Píratar 2,9%.

Samfylking að bæta við sig í NV kjördæmi - Skessuhorn