
Tveir bílar lentu í sjónum og mönnunum úr þeim bjargað
Laust eftir klukkan átta í morgun voru allir viðbragðsaðilar á Akranesi kallaðir út með hæsta forgangi að Akraneshöfn. Tveir bílar höfðu lent í höfninni við stóru bryggjuna eftir að stór alda hreif þá með sér. Einn var í hvorum bíl og náðist að bjarga þeim báðum í land. Annar var með fullri meðvitund en hinn með skerta . Báðir voru fluttir undir læknishendur og aðhlynningar á HVE á Akranesi en annar mannanna var sendur áfram þaðan á sjúkrahús í Reykjavík.
Að sögn Ásmundar Kr Ásmundssonar yfirlögregluþjóns var viðbúnaðarstig hátt vegna slyssins. Allur tiltækur mannskapur lögreglu, sjúkraliðs og slökkviliðs sem og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð út. Einnig kafarar frá sérsveitinni. Aðstoð þyrlunnar var svo afturkölluð þegar ljóst var að tekist hefði að bjarga öllum úr sjónum.
Sjór gekk yfir varnargarðinn í morgun en ölduhæð var enn mjög mikil í kjölfar vestan hvassviðris frá því í gærkvöldi samhliða hárri sjávarstöðu. Nú hefur verulega dregið úr veðurhæð en ölduhæð er engu að síður enn mikil, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd sem tekin var yfir svæðið klukkan 8:20 í morgun.