„Aðkoman var ömurleg,“ sagði Hilmar Sigvaldason í samtali við Skessuhorn.

Tjón á vitavarðahúsinu á Breið

Í vestan flóðinu í gærkvöldi varð tjón á vitavarðahúsinu á Breið á Akranesi þar sem jafnframt er upplýsingamiðstöð ferðamanna. Sjór náði að brjóta glugga á vesturhlið hússins og flæddi inn. Þá er göngustígur sjávarmegin farinn og mikill grjótburður um alla Breiðina. Hilmar Sigvaldason vitavörður segist aldrei hafa vitað annan eins sjógang á Breiðinni, mögulega hafi þetta verið mesta flóð frá því 1984. Húsið verður að minnsta kosti lokað í dag meðan unnið verður að hreinsun, tiltekt og viðgerðum.

Tjón á vitavarðahúsinu á Breið - Skessuhorn