
Ægisbrautin umflotin vatni seint í gærkvöldi. Ljósm. mm
Sjór flæddi á land á Akranesi
Sjór náði að fara yfir varnargarða á flóðum í gærkvöldi og svo aftur í morgun á Akranesi. Sjávarstaða var mjög há og svo bættist vestan hvassviðri við. Meðfylgjandi mynd var tekin skömmu eftir háflóð í gærkvöldi. Þarna er hluti Ægisbrautar umflotinn vatni og unnið við að hreinsa vatn sem náði í lægstu hús. Sjór flæddi sömuleiðis yfir lægsta hluta Breiðarinnar og að minnsta kosti inn í einn kjallara íbúðarhúss við Vesturgötu.