Götukörfuboltamót á íþróttasvæðinu í Borgarnesi árið 2023. Ljósm. hig

Ný lýðheilsustefna fyrir Borgarbyggð í burðarliðnum

Vinna er hafin við nýja íþróttastefnu Borgarbyggðar. Á síðasta fundi byggðarráðs var farið yfir starfið framundan og fyrirkomulag samráðs. „Núverandi stefna fyrir árin 2018-2025 er að renna sitt skeið og því tímabært að vinna að nýrri stefnu. Í stað þess að gera sérstaka íþrótta- og tómstundastefnu verður unnið að gerð lýðheilsustefnu fyrir sveitarfélagið og er fyrsta stoðin í þeirri vegferð ný stefna í íþróttum og hreyfingu og er henni ætlað að verða leiðarljós til góðra verka á sviði íþrótta og lýðheilsu,“ sagði Sonja Lind E. Eyglóardóttir, íþrótta- og tómstundafulltrúi Borgarbyggðar.

Ný lýðheilsustefna fyrir Borgarbyggð í burðarliðnum - Skessuhorn