Ein af auglýsingum fyrir sýninguna í París.

Nemendur LhhÍ kepptu í kúadómum í París

Þrír nemendur við Landbúnaðarháskóla Íslands; Ingiberg Daði, Matthías Emil og Margrét Ylfa, tóku þátt í Paris International Agricultural Show sem fram fór í síðustu viku og lýkur í byrjun vikunnar. Á þessari stóru sýningu var m.a. keppt í kúadómum. Með nemendunum í för voru kennararnir Karen Björg Gestsdóttir og Eyjólfur Kristinn Örnólfsson. Í vikulokapistli Ragnheiðar I. Þórarinsdóttur rektors LbhÍ segir hún að þetta hafi verið í fyrsta sinni sem Ísland sendi fulltrúa til þessarar keppni, en um 30 lönd tóku þátt.

Nemendur LhhÍ kepptu í kúadómum í París - Skessuhorn