Haraldur Benediktsson bæjarstjóri Akraneskaupstaðar.

Nauðsynlegt að ráðast í endurbætur sjóvarnargarða fyrir 400 milljónir

Veðrið um helgina lék Akurnesinga grátt. Stórstraumur, há sjávarstaða með vonsku vestan veðri olli miklum ágangi sjávar. Sjór gekk á land og olli talsverðu tjóni. Haraldur Benediktsson bæjarstjóri fór yfir málið fyrr í dag. Hann segir að eigendur húsa við Vesturgötu hafa orðið fyrir umtalsverðu tjóni á húsum sínum, þar sem sjór komst í kjallara. Þá segir hann tjón hafa orðið á görðum, grindverkum og lausamunum. Umtalsvert tjón varð á götum og göngustígum sem og á opnum svæðum.

Nauðsynlegt að ráðast í endurbætur sjóvarnargarða fyrir 400 milljónir - Skessuhorn