
Styrkþegar og fulltrúar þeirra. Ljósm. lg
Styrkjum úthlutað úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs
Í gær fór fram úthlutun úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs og var þetta fjórða úthlutunin. Viðburðurinn var að þessu sinni haldinn á vinnustofu Guðrúnar Jóhannsdóttur á Stóra Múla. Frumkvæðissjóður DalaAuðs styrkir bæði samfélagseflandi verkefni og nýsköpun í Dalabyggð. Til úthlutunar voru 19.250.000 krónur og fengu 30 verkefni styrk. „Það er gífurlega ánægjulegt að sjá hve mikil gróska er í Dalabyggð. Verkefnin sem hlutu styrk eru fjölbreytt en eiga það öll sameiginlegt að leggja áherslu á að efla samfélagið í Dölunum á einn eða annan hátt. Verður spennandi að fylgjast með framvindu þeirra allra á næstu mánuðum,“ segir Linda Guðmundsdóttir verkefnastjóri.