Fréttir
Myndin sýnir ölduspá af brunni Veðurstofunnar sem gildir kl. 06:00 laugardaginn 1. mars 2025.

Stórstreymt um helgina – hugað verði að bátum í höfnum

Landhelgisgæslan vekur athygli á að stórstreymt er á morgun, laugardag, og að há sjávarstaða verður yfir helgina. Samhliða spáir Veðurstofan hvössum vindi af suðlægum áttum næstu daga og gera ölduspár jafnframt ráð fyrir mikilli ölduhæð suður- og vestur af landinu yfir helgina og fram á mánudag.

„Því má gera ráð fyrir talsverðum áhlaðanda við sunnan- og vestanvert landið og að sjávarhæð geti orðið hærri en sjávarfallaútreikningar gefa til kynna. Landhelgisgæslan hvetur því til aðgæslu við sjávarsíðuna og á hafinu og að hugað verði að skipum og bátum í höfnum,“ segir í tilkynningu.

Stórstreymt um helgina – hugað verði að bátum í höfnum - Skessuhorn