
Vonin blíð í Orrahríð – Tónleikar í Bíóhöllinni
Laugardaginn 22. febrúar næstkomandi klukkan 20 verða haldnir tónleikar í Bíóhöllinni á Akranesi þar sem vinir Orra Harðarsonar, tónlistarmanns og rithöfundar, hafa ákveðið að fagna lífinu og tónlistinni en Orri glímir um þessar mundir við illvígt og ólæknandi krabbamein. Allur aðgangseyrir af tónleikunum fer inn á styrktarreikning til tveggja dætra Orra og er reikningurinn líka opinn fyrir frjáls framlög. Reikningsnúmerið er 0123-15-194552 og kt. er 280249-4169.
Vinir og samstarfsmenn Orra í gegnum tíðina stíga á stokk í Bíóhöllinni og spila fyrir Orra og okkur hin, lögin sín og hans. Á tónleikunum koma fram Anna Halldórsdóttir, Bubbi Morthens, Ellen Kristjánsdóttir, Hildur Vala, Ívar Bjarklind, Jón Ólafsson, Karl Hallgrímsson, KK, Pálmi Gunnarsson, Pétur Ben, Ragnheiður Gröndal, Sunna Björk og Valgerður Jónsdóttir. Þá sér hljómsveitin Orrarnir um undirleik sem í eru Birgir Baldursson, Eðvarð Lárusson, Flosi Einarsson, Guðmundur Pétursson og Jakob Smári Magnússon.
Miðasala hefst í dag á tix.is og í verslun Pennans Eymundsson á Akranesi í vikunni.