Stórhríð mánudag og viðvaranir í gangi

Djúp lægð gengur yfir landið á morgun, mánudag og eru víða viðvaranir sem fólk er hvatt til að kynna sér vel. Það gengur í austan 10-18 m/sek í kvöld og nótt með snjókomu eða rigningu allvíða. Sunnan 18-28 m/sek austanlands á morgun, annars breytileg átt 10-20. Rigning eða slydda og hiti 2 til 8 stig, en snjókoma norðvestantil. Gengur svo í vestan 20-30 m/sek seint um daginn og kólnar með snjókomu eða éljum, en styttir upp á austanverðu landinu. Hvassast í vindstrengjum norðanlands. Dregur úr vindi sunnan heiða annað kvöld.

Á spásvæðinu Breiðafirði verður gul viðvörun í gildi frá því klukkan 7 í fyrramálið og þar til síðdegis. Í fyrstu verður norðaustan og síðar norðvestan 13-20 m/s og snjókomu eða slyddu með lélegu skyggni og slæmum akstursskilyrðum. Klukkan 17 breytist viðvörunin í appelsínugula og til klukkan 22 annað kvöld. Þá verður norðvestan- og vestan 18-25 m/s og snjókoma með mjög lélegu skyggni. Ekkert ferðaveður.

Við Faxaflóa verður heldur skaplegra veður en gul viðvörun tekur gildi klukkan 7 í fyrramálið og til kl. 21 um kvöldið. Í fyrramálið verður norðaustan 13-20 m/s og snjókoma eða slydda norðantil á svæðinu með lélegu skyggni og slæmum akstursskilyrðum. Frá klukkan 14 til 21 verður vestan 15-23 m/s og snjókoma eða él með lélegu skyggni og slæmum akstursskilyrðum.

Stórhríð mánudag og viðvaranir í gangi - Skessuhorn