
Björgin í Rifi sótti bát sem rak stjórnlaust nærri landi
Rétt upp úr klukkan 5 í nótt kallaði stjórnstöð Landhelgisgæslunnar út áhöfnina á björgunarskipinu Björgu í Rifi á hæsta forgangi. Fiskibátur með tvo um borð hafði misst stýrið og rak nálægt landi. Báturinn var þá staddur rétt undan Svörtuloftum og rak í norður meðfram landi, aðeins um hálfa sjómílu frá landi. Um 15 mínútum eftir að áhöfn Bjargar var kölluð út, klukkan 5:20, var björgunarskipið lagt úr höfn og hélt áleiðis á vettvang. Björg var komin að bátnum rúmum 20 mínútum síðar og hófust strax aðgerðir við að koma taug á milli skipanna. Það gekk vel og rétt fyrir klukkan 6 var Björgin byrjuð að draga stýrislausa bátinn. Björgin kom til hafnar í Rifi skömmu fyrir klukkan 7 með bátinn í togi. Aðgerðin heppnaðist því fullkomlega og allir heilir.