
Opna brátt fyrir styrkumsóknir í Matvælasjóð
Matvælasjóður mun opna fyrir umsóknir 1. febrúar næstkomandi vegna sjöttu úthlutunar sjóðsins, hægt verður að sækja um til miðnættis 28. febrúar. Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu íslenskra matvæla og hliðarafurða þeirra úr landbúnaðar- og sjávarafurðum á landsvísu. Til úthlutunar úr sjóðnum í ár eru rúmar 477 milljónir króna.