Fréttir

Árleg vitundarvakning Krafts að hefjst

Yfirskrift herferðarinnar er: „Ég á lítinn skrítinn skugga – Lífið er núna“

Fjáröflunar - og vitundarvakning Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein er að hefjast. Vitundarvakningin er árleg og er ein stærsta fjáröflun félagsins. Markmið átaksins er að vekja athygli á mikilvægi starfsemi Krafts og veita fólki innsýn inn í þær áskoranir sem fylgja því að greinast ungur með krabbamein eða vera aðstandandi, en um 70 ungir einstaklingar greinast á ári hverju hér á landi.

Yfirskrift fjáröflunar- og vitundarvakningar Krafts í ár er „Ég á lítinn skrítinn skugga – Lífið er núna“ og vísar til þeirra langtímaáhrifa sem það hefur að greinast ungur með krabbamein, ekki bara á þann sem greinist heldur einnig á aðstandendur. Hvort sem við höfum greinst með krabbamein, einhver okkur nákominn eða við orðið fyrir öðrum áföllum á lífsleiðinni, þá eigum við öll okkar skugga sem er alltaf til staðar.

Fjáröflunarvara Krafts, Lífið er núna-húfan, sækir innblástur í hönnun listakonunnar Tótu Van Helzing sem var félagsmaður í Krafti og var stórkostlegur prjónahönnuður. Nokkrir félagsmenn Krafts segja sögu sína í átakinu sem verður hægt að finna á www.lifidernuna.is og víðar á meðan á átakinu stendur með það að markmið að leyfa almenningi að öðlast innsýn inn í reynsluheim félagsmanna Krafts.

Opnunarhátíð herferðar verður haldin á morgun, fimmtudaginn 23. janúar, í verslun Rammagerðarinnar á Laugavegi 31 í Reykjavík. Frumsýnd verður auglýsing vitundarvakningarinnar 2025, nýja Lífið er núna húfan verður kynnt til leiks og opnaðar dyrnar að glæsilegri Tótu Van Helzing sýningu í Rammagerðinni. DJ Dóra Júlía heldur uppi stuðinu, en auk þess mun Jónsi, Hipsumhaps og Una Torfa koma fram.

„Kraftur er alfarið rekið fyrir velvild almennings og fyrirtækja í landinu og skiptir fjáröflun sem þessi gríðarlega miklu máli,“ segir í tilkynningu.

Árleg vitundarvakning Krafts að hefjst - Skessuhorn