Fréttir
Bíllinn á kafi og einungis skotthlerinn stóð upp úr. Ljósm. Landsbjörg

Ferðafólk hætt komið í flóði nærri Kattarhrygg

Klukkan 04:34 í nótt voru björgunarsveitir í Borgarfirði kallaðar út vegna tilkynningar frá ferðamönnum sem voru í vandræðum við Kattarhrygg í Norðurárdal, á þjóðvegi 1 á Holtavörðuheiði. Þar hafði vegræsi stíflast svo flæddi yfir veginn á stórum kafla. Ferðafólk á tveimur bílum hafði lent í vatninu og komst út úr bílunum og upp á þak þeirra, en bílarnir voru nánast á kafi í vatninu þegar björgunarsveitir komu á vettvang. Svo mikið vatn var á veginum að Þorsteinn Þorsteinsson björgunarmaður úr bjsv. Heiðari þurfti að fara í öryggislínu og synda að öðrum bílanna, þar sem tveir ferðamenn voru á þaki hans og komust hvorki lönd né strönd. Einn ferðamaður hafði komist að sjálfsdáðum á þurrt úr hinum bílnum. Vel gekk að bjarga fólkinu af seinni bílnum og upp úr klukkan 5:30 í morgun voru allir þrír komnir í sjúkrabíl til aðhlynningar.

Björgunarfólk hafði þá jafnframt lýst vel upp nágrennið til að tryggja að engir aðrir væru þar ásamt því að veiða upp hluti sem flotið höfðu úr bílunum. Í kjölfarið var Holtavörðuheiði lokað vegna vatnavaxta (hún hefur nú verið opnuð að nýju).

Meðfylgjandi eru ljósmyndir frá vettvangi í nótt sem björgunarsveitarfólk í Borgarfirði tók.

Ferðafólk hætt komið í flóði nærri Kattarhrygg - Skessuhorn