Fréttir
Aldís Ylfa var hluti af þjálfarateymi meistaraflokks ÍA á síðasta tímabili. Hér ásamt Skarphéðni Magnússyni þjálfara og Þorsteini Magnússyni, aðstoðar- og markmannsþjálfara. Ljósm. vaks

Aldís Ylfa ráðin til KSÍ

Skagakonan Aldís Ylfa Heimisdóttir hefur verið ráðin landsliðsþjálfari U17 og U16 kvenna í knattspyrnu. Fram kemur á vef KSÍ að Aldís Ylfa er með KSÍ A-gráðu í þjálfun og meistaragráðu í verkefnastjórnun og var aðstoðarþjálfari í yngri landsliðum kvenna árin 2021-2023 (U15-U16-U17) ásamt því að starfa við Hæfileikamótun KSÍ.  Þá starfaði hún sem þjálfari hjá ÍA í rúman áratug þar sem hún þjálfaði m.a. 2. flokk kvenna ásamt því að halda utan um kvennastarfið hjá KFÍA.  Að auki var hún aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá ÍA í þrjú ár.