
Frá Stykkishólmi. Ljósm. vaks
Úthlutað úr Lista- og menningarsjóði Stykkishólms
Stjórn Lista- og menningarsjóðs Stykkishólms kom saman til fundar 3. janúar síðastliðinn. Auglýst hafði verið eftir umsóknum í sjóðinn snemma í desember og var umsóknarfrestur til 1. janúar í samræmi við reglur sjóðsins. Verkefni stjórnar var að fara yfir og meta þær átta styrkumsóknir sem borist höfðu fyrir fundinn. Farið var yfir umsóknir og tillögur að úthlutun lagðar fram en eftirfarandi verkefni hlutu styrk: Anna Melsteð - Styrkur vegna sögumiðlunar um miðbæ Stykkishólms, kr. 250.000; Skógræktarfélag Stykkishólms - Styrkur fyrir skilti, kr. 250.000. Anna Melsteð - Styrkur vegna miðlunar um Árna Thorlacius og fjölskyldu, kr. 50.000 og Gréta Sigurðardóttir - Styrkur vegna Barnabókahátíðar, kr. 50.000.