Fréttir

Glitský prýddu himininn

Í birtingu í morgun mátti sjá fjölda glitskýja á himni yfir vestanverðu landinu. Glitský myndast þegar óvenjukalt er í heiðhvolfinu, gjarnan þegar hitastig er undir -70 til -90 °C, og eru þau úr ískristöllum, eða úr samböndum ískristalla og saltpétursýru-hýdrötum. Glitský eru ákaflega fögur ský sem myndast í heiðhvolfinu, gjarnan í um 15 - 30 km hæð. Þau sjást helst um miðjan vetur, um sólarlag eða við sólaruppkomu. Litadýrð þeirra er mjög greinileg því þau eru böðuð sólskini, þótt rökkvað sé eða jafnvel aldimmt við jörðu.

Glitský prýddu himininn - Skessuhorn