Fréttir

Terra með lægsta tilboðið í sorpútboði Borgarbyggðar

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar 19. desember sl. var lögð fram opnunarskýrsla vegna útboðs fyrir úrgangsþjónustu fyrir Borgarbyggð en opnunarfundur fór fram daginn áður. Þar kom fram að þrjú fyrirtæki tóku þátt í útboðinu og voru niðurstöður eftirfarandi: Íslenska gámafélagið ehf. bauð 169.951.750 kr., Kubbur ehf. bauð 402.219.053 kr. og Terra hf. 119.577.710 kr.

Terra með lægsta tilboðið í sorpútboði Borgarbyggðar - Skessuhorn