
Akranes á aðventu. Ljósm. mm
Kveðjur úr héraði – jólakveðja frá Akranesi
Það er gamall og góður siður að senda jólabréf, en þau voru fyrr á dögum hugsuð sem nokkurs konar ítarefni með jólakveðjum. Í jólabréfum voru, auk þess að senda kveðju til heimilisfólks, sagðar fréttir úr sveitinni. Skessuhorn leitaði nú sem fyrr til tíu valinkunnra kvenna víðsvegar af Vesturlandi og voru þær beðnar að senda lesendum jólabréf úr sínu heimahéraði. Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Efnistök voru gefin frjáls og því kennir nú sem fyrr fjölbreytni í þessum vinalega og góða sið. Fyrsta kveðjan er frá Arnbjörgu Stefánsdóttur á Akranesi. Þær birtast síðan hver af annarri með hálftíma fresti í kvöld.