Fréttir

Grunur um Listeria í sviðasultu frá Kjarnafæði

Matvælastofnun varar við neyslu á ákveðnum framleiðslulotum af Lamba sviðasultu frá Kjarnafæði Norðlenska ehf. vegna gruns um að varan sé menguð af bakteríunni Listeria monocytogenes. Fyrirtækið hefur innkallað vörurnar með best fyrir 3. - 7. janúar 2025, í samráði við Matvælastofnun. Auk þess fór fyrirtækið fram á að allri sviðasultu sem seld var til heilbrigðisstofnananna í desember yrði fargað af öryggisástæðum.

Innköllunin á einungis við um eftirfarandi framleiðslulotur:

Vöruheiti: Kjarnafæði LAMBA SVIÐASULTA

Framleiðandi/fyrirtæki sem innkallar vöruna: Kjarnafæði Norðlenska ehf.

Rekjanleikaupplýsingar: Best fyrir 03. - 07.01.2025

Kælivara

Dreifing:

Fjöldi matvöruverslana um land allt: Bónus, Fjarðarkaup, Hagkaup, Kjörbúðin, Krambúð, Prís, Samkaup, Búðin Borgarfirði eystra, Ekran, Extra verslun, Gvendarkjör, Heimkaup, Hlíðarkaup, Jónsabúð, Kf. Vestur Húnvetninga, Melabúðin, Skerjakolla.

Heilbrigðisstofnanir: Heilbrigðisstofnun Fjallabyggð, Heilbr.st. Suðurnesja Keflavík, Droplaugarstaðir, Sóltún, Heilbr.st Austurl. Seyðisfirði, Heilbrigðisstofnun Blönduós.

Grunur um Listeria í sviðasultu frá Kjarnafæði - Skessuhorn