Sóley Rós og Árdís Eva hæstánægðar með afurðina. Ljósm. Bragi Kort.

Þekktasta smákaka landsins yfirfærð í ísblóm

MOON veitingar og Emmessís hafa í sameiningu þróað nýja gerð af Ísblómi sem inniheldur súkkulaðirjómaís með kaffi og sörubotni og verður Ísblómið framleitt í takmörkuðu magni fyrir jólahátíðina í ár. MOON veitingar, sem frumkvöðlarnir og matreiðslumeistararnir Sóley Rós Þórðardóttir úr Búðardal og Árdís Eva Bragadóttir stofnuðu fyrir fáeinum árum fyrir veisluþjónustu, hafa gert garðinn frægan á veitingamarkaðnum hérlendis. Meðal annars með þróun og framleiðslu spennandi sælkerakrása í gjafaöskjum fyrir sérstök tilefni, svo sem Valentínusardaginn og Konudaginn, en nú langaði þær að þróa nýja sérvöru fyrir jólahátíðina í ár.

Þekktasta smákaka landsins yfirfærð í ísblóm - Skessuhorn