
Jólastjarnan á Sementssílóunum lýsir upp skammdegið
Ein af ómissandi jólahefðum Sementsverksmiðjunnar á Akranesi er þegar jólastjarnan er sett upp. Stjarnan, sem trónir í um 38 metra hæð fyrir ofan sementssílóin, hefur lýst upp skammdegið og glatt íbúa Akraness samfellt í 65 ár.