
Texti og myndir: vaks
Jólamorgunstund í Brekkubæjarskóla – Myndasyrpa
Það var mikið fjör í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi í morgun þegar haldin var morgunstund á vegum Brekkubæjarskóla. Nemendur og kennarar voru í miklum jólagír og fluttu nemendur jólalög af ýmsum gerðum með aðstoð húshljómsveitar. Fyrsti bekkur söng lagið um Jólaköttinn, 6. bekkur flutti lagið Gleðileg jól, 7. bekkur tók lagið prettyboi um jólin eftir Patrik og 8. bekkur fór létt með lagið Þegar Þú Blikkar.