
Íbúum fjölgaði í öllum sveitarfélögum Vesturlands á árinu
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár voru Íslendingar 406.046 sunnudaginn 1. desember síðastliðinn og hafði fjölgað um 7.410 á 12 mánaða tímabili. Íbúar á Vesturlandi eru nú 18.479 og fjölgaði um 438 á árinu. Það er næstmesta fólksfjölgun eftir landshlutum, eða 2,4%, en á Suðurlandi fjölgaði um 3,8% á síðasta ári. Íbúum á Suðurnesjum fækkaði hins vegar um 2,7% sem skýrist af brottflutningi Grindvíkinga, en íbúum þar fækkaði um rúmlega 62% á árinu.