
Hestur í Andakíl. Ljósm. Eyjólfur Kristinn Örnólfsson
Hestur – Ein þekktasta sauðfjárrannsóknarstöð heims 80 ára
Á þessu ári er starfsemi tilraunabúsins á Hesti 80 ára. Í mars var haldinn tveggja daga ákaflega vel heppnuð ráðstefna til að minnast tímamótanna. Ætlunin er að á næsta ári gefi LbhÍ út glæsilegt afmælisrit með meginefni ráðstefnunnar sem allir eiga þá greiðan aðgang að. Þar verður fjöldi áhugaverðra erinda frá fundunum, sem ég hvet allt áhugafólk til að kynna sér.