
Aníta Hanna Kristjánsdóttir og Tindur Ólafur Guðmundsson frá björgunarsveitinni Heimamönnum tóku á móti styrknum frá Össu en það var Andrea Björnsdóttir gjaldkeri Össu sem afhenti styrkinn. Ljósm. reykholar.is
Björgunarsveitin Heimamenn fékk styrk frá Össu
Undanfarin 14 ár hefur handverksfélagið Assa í Reykhólahreppi verið með nytjamarkað þar sem allskyns hlutir og bækur eru fáanlegar. Verðlagning er með þeim hætti að kaupendur bjóða í hlut sem þeim líst á og oftast er því tekið án þess að athugasemdir séu gerðar.