Fréttir
Hvalfjarðargöng. Ljósm. Skessuhorn

Umferðarstýring um Hvalfjarðargöng tvær næstu nætur

Unnið verður í Hvalfjarðargöngum í nótt og aðfararnótt fimmtudagsins 12. desember. „Vinnan hefst um miðnætti og stendur yfir fram eftir nóttu. Umferðarstýring verður á svæðinu og eru vegfarendur beðnir að aka með gát,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.