
Ferjan Baldur í Stykkishólmshöfn. Ljósm. sá
Málefni ferjunnar Baldurs tekin fyrir á hafnarfundi
Á fundi hafnarstjórnar sveitarfélagsins Stykkishólms mánudaginn 2. desember gerði hafnarstjóri grein fyrir framtíðaráformum um uppbyggingu hafnarmannvirkja í Stykkishólmi. Meðal annars liggur fyrir að stækka þurfi ferjubryggju og laga hafskipsbryggju. Einnig þarf að endurbæta stólpa undir hafskipsbryggju og skipta um stálþil á Skipavíkurbryggju.