
Brák selur jólatrén bæði á netinu og á Fitjum
Björgunarsveitin Brák í Borgarnesi verður með jólatréssölu næstu dag, eða til jóla. „Við höfum byrjað árlegu jólatréssöluna okkar og þá í vefverslun á jolatresala.is en það er í fyrsta skipti sem Brák býður uppá að kaupa jólatréð gegnum netið. Við höfum myndað nokkur furutré og nefnt þau í höfuðið á félögum Brákar og þar með er hægt að velja tré út frá mynd og stærð þess og því ríkir engin óvissa um hvernig tréð lítur út sem kaupandinn er að fá, því myndin sýnir nákvæmlega það tré sem er pantað. Nordmannsþinur er væntanlegur og verður þeim trjám bætt við eins og gert hefur við furutrén. Félagar úr Brák sjá um að koma jólatrénu heim að dyrum annan hvern dag án aukakostnaðar (innan 310 Borgarnes svæðisins) og óháð opnunardögum jólatréssölunnar í húsnæði Brákar,“ segir Anton Steinn Pétursson félagi í Brák.